Nú er komið fram í lok nóvember og sá tími kominn að við förum að skella fleiri veiðileyfum i sölu inná vefinn okkar. Um daginn kom Gufuá í sölu en nú höfum við einnig bætt við Eystri Rangá og dögum í Laxá í Laxárdal í Skefilsstaðahreppi.

Í Eystri Rangá er um að ræða snemmsumars stórlaxa daga sem hafa oft gefið frábæra veiði. Í fyrra var veiðin róleg en ævintýralega góð árið þar áður. Seldar eru 3 stangir í pakka og er um breytta svæðaskipan að ræða á þessum tíma. Ánni er skipt í 4 svæði og veiða men 2 svæði á hverjum degi. Hérna má sjá dagana í Eystri Rangá.

Í Laxá í Laxárdal er um að ræða staka daga en eins og kemur fram á vefnum, þá skipta bændur á svæðinu dögum á milli sín. Veiðitímabilið er stutt í Laxánni og aðsóknin mikil. Hérna má sjá lausa daga í Laxá.

Á næstu dögum munu fleiri vatnasvæði koma í formlega sölu. Við minnum svo veiðimenn á að Veiðikortið 2018 er komið í sölu – þeir sem skráðir eru á póstlista veiða.is, fá kortið á betra verði.

Veiða.is stærsti óháði söluvefur veiðileyfa á Íslandi í dag. Á nýliðnu veiðitímabili voru í sölu á vefnum, vel yfir 30 veiðisvæði, ár og vötn.  Það stefnir í fjölgun svæða fyrir næsta tímabil.