Þessa dagana er veiðin að hefjast í fjölmörgum laxveiðiám. Almennt er um þokkalegar byrjanir að ræða og fiskar að koma á land á fyrsta degi. Kuldinn á landinu nú í júní virðist þó hafa haft áhrif á göngur, svo nú þegar hitatölur virðast stefna í rétt átt, þá vonast veiðimenn til að fleiri fiskar fari að skila sér uppí árnar.
Hallá opnaði nú í vikunni og fyrsti laxinn tók á seinni vaktinni á opnunardeg i – Kjalarlandsfoss var veiðistaðurinn og tók fiskurinn Collie Dog flugu, 81 cm löng hrygna koma á land.
Fyrsti veiðidagurinn í Gufuá var í vikunni og strax á fyrsta degi kom 1 lax á land og einhverjir silungar.
Ytri Rangá opnaði í byrjun viku, en enginn lax er ennþá kominn á land en nokkrir misstir.
Hér meðfylgandi er mynd af fyrst laxinum í Hallá.