Veiðileyfi í Laxá á Ásum – Við vorum rétt í þessum orðum að klára að skrá veiðileyfi í Fremri Laxá, Ósasvæði Laxá á Ásum og Laxá á Ásum inná vefinn í sölu. Þessi svæði öll eru vinsæl og því hvetjum við alla áhugasama til að kíkja á þessa daga og athuga hvort þar sé eitthvað sem hentar.

Laxá á Ásum þarf s.s. ekki að kynna fyrir laxveiðimönnum á Íslandi en um árabil hefur hún verið besta eða ein allra besta laxveiðiá landsins, yfirleitt með hæstu meðalveiði á stöng á hverju tímabili. Í vetur er Laxárvatnsvirkjun lögð af sem þýðir að veiðisvæðið lengist og kemst í upprunalegt horf, og stöngum fjölgar úr 2 í 4. Hérna má lesa nánar um Laxá á Ásum og hérna má finna nokkra lausa daga í Laxá á Ásum.

Við minnum einnig á önnur veiðileyfi á vefnum, sjá hér.