Veiðileyfi í Laxá – Laxá í Skefilstaðahreppi (Laxá á Skaga eða Laxa í Laxárdal) er dragá sem fellur til sjávar í Sævarlandsvík við vestanverðan Skagafjörð. Laxá hefur verið í uppbyggingarfasa síðustu árin eftir að stofn árinnar var næstum horfinn í lok 10. áratugarins. Áin var friðuð í nokkur ár í upphafi aldarinnar en síðustu sumur hefur veiðin farið af stað aftur, þó með takmörkunum. Veitt er um 50 daga á sumri og hámarksveiði á dag er 5 laxar á stöng en einungis má halda eftir 1 hæng, undir 70 cm löngum.
Veiðin síðustu ár hefur gengið vel og er laxastofn árinnar klárlega að styrkjast. Sem dæmi um góða veiði þá veiddust nálægt 200 laxar sumarið 2015 og veiðin 2016 var einnig mjög góð.
Bændur sem eiga veiðirétt að ánni skipta veiðidögunum á milli sín. Ekkert formlegt veiðihús er við ána, en þó fylgir gisting í gistihúsinu á Skíðastöðum með sumum leyfanna en í öðrum tilfellum er hægt að kanna sérstaklega hvort gistihúsið sé laust. Seldar eru 2 stangir dag hvern og eru þær seldar saman í pakka í flestum tilfellum.
Nú höfum við skráð nokkra daga í sölu inná vefinn – hérna má sjá þá.