Veiðitímabilið hefst nú á laugardaginn, 1. apríl. Veðurguðinn virðist vera vel meðvitaður um það, enda skellir hann vorinu á með krafti, frá og með deginum í dag. Næstu daga mun verða votviðrasamt á mest öllu landinu, og hitinn víða á bilinu °6-10 yfir daginn. Við erum með fjölmörg veiðisvæði sem „opna“ nú í apríl, eins og sjá mér hér.

Vorveiði – Bíldsfell

Annað vorveiðisvæði, Bíldsfellið í Soginu, „opnar“ 10. maí. Sogið er þekkt fyrir sínar flottu bleikjur og vorið er góður tími til að hitta á hana í Bíldsfellinu og einnig á Torfastöðum í Soginu. Um leið og hlýnar og lífríkið fer af stað, þá fer verður bleikjan virk í fæðisleit.

Veiðin hefst á miðju vori í Bíldsfellinu, eða 10. maí. Við seljum 2 stangir saman í pakka – en veiða má á 3ju stöngina í kaupbæti. Veitt er frá morgni til kvölds, á einni vakt, 8-20. Fluga er leyfilegt agn, og sleppa skal öllum fiski.

Hérna má finna leyfin í Bíldsfellið.