Veiðin í Ytri Rangá heldur áfram að vera mjög góð. Gærdagurinn gaf 85 laxa og dagurinn þar á undan gaf 74 laxa. Daglega eru að koma á land stórir drekar. Á föstudaginn kom einn 95 cm á land og einnig settu veiðimaður í fisk við Reyrhólma sem var klárlega yfir 100 cm. Hann slapp rétt áður en hann náðist í háfinn.

Við vorum að fá forfalla stöng í sölu dagana 18-22. sept. Hægt er að bóka staka daga eða fleiri samfellda daga. Einnig væri hægt að bæta við gistingu á 1/2 gæt. Hérna er hægt að sjá þessa lausu stöng. Einnig áttum við staka stöng 18/9 og 20/9.

Hægt er að hafa samband við veiða.is fyrir frekari Upplýsingar.