Fremri Laxá er klárlega ein albesta urriðaá landsins en ár hvert veiðast 3-5.000 urriðar í ánni. Þó margir urriðanna séu að stærðinni 1-2 pund, þá veiðast fjölmargir stærri urriðar í ánni. Lengsti urriðinn sem við heyrðum að veiddist í sumar, var 63 cm langur sem gæti verið í kringum 6 pundin. Veitt er á flugu í Fremri Laxá og hefur þessi frábæra á verið góður og skemmtilegur skóli fyrir marga sem hafa verið að stíga sín fyrstu skref í fluguveiði. Mikið „action“ er oft við ána, margar tökur, mörgum fiskum landað og margir misstir. Nú vorum við að skella lausum hollu sumarið 2018 í Fremri Laxá á vefinn okkar. Hérna má sjá lausa daga og verð.
Með veiðileyfunum fylgir gamla veiðihúsið við ána en einnig er hægt að leigja mjög gott ný-uppgert hús sem stendur steinsnar frá ánni.