Nú er einungis rétt rúmur mánuður þar til veiðitímabilið hefst hér á landi. Við erum í óða önn þessa dagana að raða veiðleyfum inná vefinn. Nú eru yfir 20 veiðisvæði komin í sölu og þeim á eftir að fjölga á næstu dögum og vikum. Við viljum í þessum pósti vekja athygli á nokkrum áhugaverðum svæðum sem eru með lausa daga í júní mánuði.
- Eystri Rangá – Þeim fer fækkandi lausu dögunum í Eystri Rangá. Frábært að byrja veiðitímabilið með því að setja í einn eða tvo stórlaxa hérna.
- Gufuá í Borgarfirði – Lausir daga í upphafi laxveiðitímabilsins. Verð veiðileyfa frá 17.500 – 25.000
- Fremri Laxá – Það eru tvö laus holl í júní í þessari frábæru urriðaá. Í júní er oft mögnuð veiði í Fremri Laxá. Urriðinn tekur næstum í hverju kasti stundum. Stærstu urriðarnir sem veiddust í fyrra voru yfir 60cm og sá stærsti sem við heyrðum af var 65cm.
- Ósasvæði Laxár á Ásum – Tveir dagar lausir á þessum frábæra svæði, stórstreymisdagar í lok júní. Frábær tími.
- Mýrarkvisl – Urriðaveiðin í Myrarkvisl er oft mögnuð í júní. Við heyrðum frá 2 erlendum veiðimönnum sem voru í Mýrarkvisl eftir 20. júní í fyrra. Þeir veiddu um 100 urriða, nánast alla á þurrflugu, á 2 dögum. Stærðin var frá 40-60 cm.
- Hlíðarvatn í Selvogi – Við eigum ennþá nokkra daga lausa í Hlíðarvatni. Sjá hérna.
Við eigum einnig lausa daga á nokkrum öðrum svæðum, m.a. í Norðurá I.