Norðurá í Borgarfirði er ein albesta laxveiðiá landsins. Veiðisvæði Norðurár er skipt í 2 hluta, Norðurá I og Norðurá II. Norðurá I er aðal veiðisvæði árinnar en veitt er á 8-12 stangir á því svæði. Veiðisvæði Norðurá II er hreyfanlegt yfir tímabilið: Er neðst í ánni frá opnun og fram í byrjun júlí og er þá kallað Munaðarnessvæðið og er síðan efsti hluti Norðurár eftir það og er þá kallað Fjallið.

Munaðarnessvæðið er vanmetið veiðisvæði. Veitt með 2 til 3 stöngum, frá morgni til kvölds. Ekkert veiðihús er á svæðinu. Allur fiskur sem er á leið uppá aðalsvæðið, fer um Munaðarnessvæðið. Einnig eru nokkrir mjög flottir „stoppustaðir“ fyrir laxinn á Munaðarnessvæðinu þar sem alltaf má búast við fiski. Dagarnir á Munaðarnessvæðinu eru seldir í einum pakka. Heimilt er að veiða á allt að 3 stangir. Verðið á hverjum degi er frá kr. 56.000 til 88.000 sem þýðir að stangardagurinn er á kr. 18.700 til 29.300, sem er með því lægsta sem finnst fyrir góða laxveiði. Hérna má sjá lausa daga og verð.

Fjallið er frábært veiðisvæði. Einnig veitt með 3 stöngum sem seldar eru saman í pakka í 2 til 3 daga í senn. Fínt veiðihús fylgir leyfunum á Fjallinu, á góðum stað nálægt helstu veiðistöðunum. Við eigum flott holl laus á Fjallinu í sumar. Sjá hérna.

Fyrir nánari Upplýsingar um þessi svæði, má senda okkur póst, hérna.