Veiðin í Gufuá hefur almennt gengið vel í sumar. Rúmlega 70 laxar eru nú skráðir í veiðibókina, sem er góð veiði á 2 stangir á rétt um 30 dögum. Vatnsstaðan í ánni hefur verið misjöfn. Um síðustu mánaðamót var vatnsstaðan mjög góð og þá veiddist lax útum alla á. Fyrir ofan þjóðveg voru veiðimenn að týna upp laxa í ýmsum holum, strengjum og undir fossinum. Þegar kom inní júlí þá minnkaði vatnið og Veiðin hefur því verið mest neðarlega á svæðinu, og niður í ós.

Við hvetjum alla sem eru á leið í Gufuá að kynna sér það sem stendur um ána hérna á vefnum og einnig getum við gefið ykkur nafn og símanúmer hjá manni sem er vel kunnugur ánni og er meira en tilbúinn að gefa góðar Upplýsingar, áður en farið er til veiða.

Hérna má finna lausa daga í sumar í Gufuá