Fyrsti veiðidagur ársins var við Hlíðarvatn í Selvogi í dag. Norðaustan strekkingar var við vatnið framan af degi, en þegar leið á daginn lægði.
Við heyrðum frá þeim sem voru við veiðar á vegum Árbliks í dag.
Við Austurnesið gerðu veiðimennirnir sem voru við vatnið gott mót. Þegar lægði, og gerði smá logn, þá kviknaði töluvert líf við vatnið – uppítökur – fengu þeir samtals 11 bleikur og misstu all margar. Flestar tóku þær krókinn og tailor. Hér á myndinni er hluti aflans. Stærsta bleikjan vóg 1,8 kg og sú minnsta á myndinni er 0,7 kg. Þær sem voru minni fengu líf.
Við heyrðum einnig í veiðimönnum sem voru á vegum Ármanna við vatnið. Þeir gerðu einnig frábært mót. “ Í lok dags voru komnar 75 bleikjur í bók, mest á bilinu 40-50 cm og einstakleg vel haldnar“
Spennandi tími er framundan við vatnið og sumarið á næsta leyti.