Reykjadalsá í Þingeyjarsýslu er ein albesta urriðaá landsins. Reykjadalsá er í Reykjadal, næsta dal við Aðaldal. Reykjadalsá rennur í Laxá í Aðaldal efst á Nessvæðinu, í gegnum Vestmannsvatn og Eyvindarlæk. Urriðaveiðin í Reykjadalsá er oft á tíðum mögnuð en bæði er mikið af smærri og vænum urriðum í ánni. Þegar kemur undir mánaðamót júní/júlí, má búast við að fyrstu laxarnir fari að veiðast í Reykjadalsá.

Leyfilegt agn er fluga í Reykjadalsá og seldar eru 6 stangir dag hvern. Mjög fínt veiðihús er við ána og gisting þar er innifalin þegar keypt eru holl í ánni – en griða þarf fyrir uppábúið og þrif.

Hérna má finna laus holl í Reykjadalsá í sumar.