Nú höfum við sett veiðileyfin á Syðri Brú, veiðitímabilið 2021, í sölu hér á vefnum. Syðri Brú er eitt albesta veiðisvæðið í Soginu.
Syðri Brú er stór skemmtilegt laxveiðisvæði, og eitt af fáum einnar stanga laxveiðisvæðum landsins. Syðri Brú er efsta veiðisvæðið í Soginu, í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Svæðið er stutt og þægilegt og nær frá Landaklöpp niður að Merkjalæk um 2,5 km. 8 merktir veiðistaðir eru á svæðinu. Ber þar helst að nefna helst að nefna Landaklöpp, sem er efsti veiðistaður svæðisins. Landalöpp hefur í gegn um tíðina oft gefið frábæra veiði. Viljum við benda veiðimönnum á að öll veiði er bönnuð frá gömlu brú sem liggur ofan við Landaklöpp. Þar sem Landklöpp er efsti veiðstaður í Soginu þá safnast oft mikið af Laxi á Landaklöppinni.
Á svæði Syðri Brúar veiðist töluvert af bleikju, einnig reitingur af urriða.
Seldir eru stakir dagar, frá morgni til kvölds og veiðitíminn er hefðbundinn.
Ekkert veiðihús fylgir leyfunum, en hægt er að útvega gistingu í húsinu sem stendur við efsta veiðistaðinn, Landaklöpp.