Frá byrjun júlí þá hefur verið góður stígandi í veiðinni í Soginu og í Hvítá. Við sögðum frá fyrstu fiskunum að Syðri Brú í Soginu, strax í byrjun mánaðar og á þeim tíma voru veiðimenn í Alviðrunni einnig að setja í fiska. Við heyrðum svo af veiðimanni sem var að veiða bæði í Bíldsfellinu og Alviðru, dagana 6-10. júlí. Hann gerði fína veiði á báðum svæðum. Bíldsfellið gaf þessum veiðimanni 5 laxa og sama gerði Alviðran. Hann setti í fleiri laxa á báðum svæðum – bleikjan gaf sig líka og komu nokkrar Sogs kusur á land.

Stórstreymi er í dag og skilar straumurinn vonandi fínum göngum uppí Sogið og aðrar ár á landinu. Spennandi verður að fylgjast veiðitölum og veiðifréttum næstu daga.

Hérna má finna leyfi í Bíldsfellið í sumar.

Hérna má finna daga í Alviðruna í sumar.

Meðfylgjandi eru myndir frá síðustu dögum í Soginu.