Nú um helgina er stórstreymi og víða um land hafa sést merki um að laxinn er að nýta góðar aðstæður á ósasvæðum, til að keyra uppí árna. Við heyrðum frá veiðimann í Skógá í dag – hann setti í lax,og landaði, í ármótunum, nýrunninn smálax sem hefur nýtt sér háa sjávarstöðu til að keyra upp ósinn. Fiskurinn tók að sjálfsögðu fluguna „Skógá“. Flott vatn er í Skógá þessa dagana og í rigningunni fyrir helgina gengu uppá í ána töluvert af fiski – mikið af honum fór all leið uppí Kvernu, hliðará Skógár en einnig stoppaði hann niður í Skógá.

Framundan er besti tíminn í Skógá – ágúst og fram í byrjun september.

Við seljum 2 stangir saman í pakka í Skógá, samtals max 4 stangir – veiðimönnum stendur einnig til boða að greiða fyrir 3 stangir, og þá hafa þeir ána fyrir sig.

VEIÐIHÚS: Frá 12. ágúst þá stendur veiðimönnum til boða gisting inná Skógum. Svefnpokaplass með fínni aðstöðu. Hægt er að koma í hús frá kl. 22 fyrir veiðidag og rýma þarf í síðasta lagi kl. 18 að kvöldi veiðidags.

Hérna má finna leyfin í Skógá.

Meðfylgjandi eru myndir frá Skógá, frá því í dag og síðustu daga.