Norðfjarðará opnaði um helgina en Norðfjarðará fellur til sjávar í Norðfjörð, innanverðan, en stutt er þaðan út í Neskaupstað. Norðfjarðará hefur verið eitt af best geymdu leyndarmálum í stangveiðinni en í mörg undangengin ár hefur hún veirð ein af 10 bestu bleikjuám landsins. Sumarið 2012 var besta sumarið í sögu árinnar en þá veiddust 1.142 bleikjur og 11 laxar á stangirnar þrjár sem leyfðar eru.
Norðfjarðará opnaði svo um helgina og voru fyrstu bleikjurnar ekki að láta bíða eftir sér. Fjölmargar bleikjur komu á land og voru þær flestar á bilinu 1,5-2,5 pund. Eitthvað er um lausar stangir í sumar í ánni, þó sérstaklega nú í lok júní og undir lok veiðitímbilsins í september.