Í bændablaðinu í síðustu viku var auglýsing frá veiðifélaginu Hæng þar sem það óskaði eftir tilboðum í Laxá á Refasveit fyrir árin 2014, 2015 og 2016. Útboðsfrestur er til kl. 14:00 laugardaginn 26. október.

Hér inni á veiða.is eru upplýsingar um Laxá á Refasveit og síðustu 2 sumur hefur verið hægt að kaupa veiðileyfi í ánni hér inni á veiða.is. Laxá hefur átt sína föstu fylgismenn sem sótt hafa í ána ár eftir ár. Þó hafa alltaf nokkur holl farið í „almenna“ sölu.

Veitt er með 3 stöngum í Laxá á Refasveit bróður partinn úr sumrinu. Á haustin hefur stöngunum verið fækkað í tvær. Leyfilegt agn hefur verið fluga og maðkur. Hér má sjá nánari upplýsingar um Laxá á Refaveit og þar á meðal nokkrar myndir frá ánni. Fín veiði hefur verið í ánni síðustu ár og þó svo að við höfum ekki séð lokatölur úr ánni þá er fullvíst að sumarið var frábært í ánni, með þeim albestu í sögunni.

[email protected]