Við sögðum um daginn frá því að veiðin í Brúará hefði verið góð í júní. Veiða.is kíkti í ána í gær og í dag og sannreyndi að nóg virðist vera af bleikju á svæðinu. Í dag voru veiðimenn að fá bleikjur allt frá Breiðabakka og uppá Fossbrún. Stærsta bleikjan sem við sáum í dag var um 3,5 pund. Þegar við fórum frá ánni, þá voru a.m.k. 20 bleikjur komnar á land í dag. Einnig fréttum við að Árni Kristinn Skúlason, sem býr á Seli, sem er bærinn á móti Spóastöðum, hefði gert góða veiði í ánni í gær. Myndin hér til hliðar sýnir hluta af þeim bleikjum sem hann náði. Öðrum sleppti hann. Það eru lausar stangir á næstunni. Verð kr. 3.300 fyrir daginn. Sjá hér.

 

[email protected]