Fyrstu laxarnir sem koma úr Skógá þetta sumarið, komu á land í vikunni. Þeir voru 75 og 60 cm langir. Sá stærri kom á land á stað nr. 49 sem er rétt fyrir ofan þjóðveg en sá minni kom á land uppí Kverná. Í fyrra var um 30.000 laxaseiðum sleppt í Skógá svo gott er að sjá að eins árs fiskurinn er farinn að skila sér í ána. Sumarið 2013 veiddust um 150 laxar í ánni en hún var lítið stunduð. Hér inni á veiða.is má finna nokkra lausa daga í Skógá, þar á meðal nokkra nú í lok júlí. Hér má sjá þessa daga. Stangardagurinn er á kr. 30.000.