Þá er fyrsti veiðidagur ársins liðinn. Almennt höfðu veiðimenn ágæta sögu að segja, þó fremur kalt hafi verið í veðri og reyndar skítaveður víða á suðurlandi, þegar leið á daginn. Hér að neðan er smá yfirlit yfir gærdaginn.
Brunná/Sandá – 16 fiskar komu á land: 12 urriðar og 4 bleikjur.
Brúará – Einhverjir fiskar komu á land, en veiðimenn stöldruðu ekki lengi við vegna veðurs.
Ytri Rangá – Fínir fiskar komu á land í Ytri Rangá. Sá stærsti var 7,6 kg og rétt um 80 cm langur.
Eyjafjarðarár – 20 fiskar komu á land, mest birtingar. Sá stærsti rétt um 88 cm langur.
Geirlandsá – Áin var ekki „opnuð“. Ís var á ánni sem hamlaði veiðum.
Eldvatn – Skilyrði voru erfið við Eldvatn á fyrsta veiðidegi ársins. 4 fiskar komu á land, sá stærsti um 76 cm langur.
Varmá – Skilyrði voru erfið en samt var smá kropp en mun minna ef oft áður.
Vífilsstaðavatn – Kalt var við vatnið og slatti af veiðimönnum sem létu sig hafa það – ekki fengust nokkrar fréttir af veiði.
Við munum birta fleiri fréttir í dag, eftir því sem tilefni gefst.









