Á morgun, 1. apríl, hefst veiðitímabilið með formlegum hætti. Veðurspá fyrir fyrstu daga apríl er mjög fín. Rauðar tölur fyrstu 4 daga mánaðarins, um allt land. Hægviðri og þurrt að mestu.

Við erum með allmörg svæði hér á vefnum sem „opna“ á morgun. Sum svæði eru uppbókuð fyrstu dagana en önnur eru með lausa daga, inn á milli.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir stöðuna á þeim svæðum þar sem veiði hefst á morgun:

 

Bíldsfell, Sog – Bleikja, Birtingur og Urriði. Fyrstu 2 dagarnir eru bókaðir og einnig 4. apríl. 3. apríl er hinsvegar laus og einnig 5. apríl.

Brúará, Spóastaðir – Bleikja og urriði. Fyrstu 3 dagar tímabilsins eru uppbókaðir. Laust frá 4. apríl.

Brúará, Skálholt – Bleikja og urriði. Lausar stangir um helgina og á morgun. Stangardagurinn á kr. 3.500

Hólaá, Útey – Bleikja og urriði. Fyrstu 4 dagarnir eru fullbókaðir á vefnum, en lausir dagar frá 5. apríl

Galtalækur – Urriði. 1. apríl er seldur en lausir dagar þar á eftir. Sjá hér,

Hraun í Ölfusi – Sjóbirtingur og urriði

Hvítá fyrir landi Skálholts – Sjóbirtingur, urriði og bleikja. 1. apríl var að losna. Veiðin í fyrra var Mjög góð fyrstu dagana í Apríl

Minnivallalækur – Urriði. Stakir dagar seldir. Stakar stangir lausar um helgina, laugardag og sunnudaga. 

 

Framundan núna í April eru svo fjölmargir frídagar sem ætti að gefa flestum tækifæri til að bleyta í færinu, eftir einn erfiðasta veðurvetur í manna minnum.