Það er ennþá örlítið eftir af veiðivertíðinni. Flest veiðisvæði „loka“ núna um eða kringum helgina en síðan eru nokkur sem eru opin eilítið lengur. Við erum með nokkur svæði sem eiga lausa daga eða stangir.

Víðidalsá, Silungasvæði: 2 stakir dagar. 2 stangir seldar saman í pakka. 21-22. sept og 27-28. sept. :Þessir dagar fást á góðu verði. Sendið póst á [email protected] fyrir frekari upplýsingar

Stök vakt í Bíldsfellinu: að morgni 21. sept. Greitt fyrir 2 stangir en veiða má á 3 stangir

Alviðran í Soginu: 4 dagar eftir á tímabilinu. Stakir dagar á flottu verði.

Syðri Brúi í Soginu: 3 dagar lausir. Flott veiði þar í sept. Sjá hér.

Hraun í Ölfusi: Opið inní Október.

Langadalsá: 2 holl í lok september á frábæru verði. Stangardagurinn á kr. 29.000.

Hlíðarvatn í Selvogi: Lausir dagar í Hús Ármanna og Árbliks

Brúará: Lausar stangir fram til 24. sept.

Skógá: Veiðin er búin að vera flott í Skógá. T.d. gaf síðasta helgi hátt í 30 laxa. Lausir dagar í lok sept og í okt

Brennan: stakir dagar á lausu í Brennunni. Sjóbirtingstími. Greitt fyrir 4 stangir en veiða má á 5 stangir.