Laxveiðivertíðin er komin af stað. Urriðafosssvæðið í Þjórsá opnaði í vikunni og er veiðin búin að vera góð, þrátt fyrir leiðindarveður framan af viku. Mest er að veiðast stórlax en þó hefur smálax slæðst með í aflanum, sem veit á gott fyrir laxveiðigöngur sumarsins. Eftir helgina opna nokkrar ár og ársvæði í borgarfirðinum, m.a. Norðurá. Spennandi verður að sjá hvort vesturlandið komi jafnvel undan vetri og suðurlandið.
Við minnum þá sem eru á póstlista/veiðiklúbbi veiða.is á, að fram til 8. júní, þá bjóðast stangir í Eystri Rangá nú í júní, á betra verði. Upplýsingar um það koma fram í síðasta fréttabréfi. Einnig eru valin holl í Norðurá I og Norðurá II á betra verði fyrir þá sem eru í Veiðiklúbbi veiða.is.
Við minnum einnig á að við eigum einn lausan dag á Munaðarnessvæðinu í Norðurá, 25. júní.