Straumar og Brennan í Borgarfirði eru 2 af vinsælli og betri laxveiðisvæðunum á vesturlandi. Á venjulegu sumri fer gríðarlega mikið af fiski um svæðin, bæði lax og birtingur.

Veitt er með 2 og 3 stöngum á svæðunum og leyfilegt agn er fluga í júní og júlí en í ágúst bætist spúnninn við.

Veitt er inn í byrjun september í Straumunum en til loka sept í Brennunni. Fín veiðihús fylgja leyfunum á þessum svæðum.

Nú eru laus veiðileyfi á bæði þessi svæði, fyrir sumarið 2026, komin hingað inn á vefinn í sölu. Hérna má finna lausa daga í Brennunni og hérna má finna lausa daga í Straumunum.

Fyrir nánari Upplýsingar, þá má einnig senda tölvupóst á [email protected]