Þessa dagana erum við að raða lausum dögum á vefinn fyrir hin ýmslu svæði. Nú eru veiðileyfi í Alviðruna, Bíldsfellið og Torfastaði í Soginu komin á vefinn. 

Bíldsfellið í Soginu – í grunninn eru seldir 2 dagar saman í Bíldsfellinu, 3 stangir saman í pakka. Hægt er að bæta við dögum, ef laust er. Hollin eru seld með húsgjaldi og innifalið í því er uppábúið og þrif. Verð: Flest tímabil innan sumarsins lækka í verði, eða standa í stað í verði. Verð á stangardag er frá kr. 36.900 uppí 69.000. Sjá hér.

Alviðran í Soginu – Seldir eru bæði stakir dagar á Alviðru svæðið og einnig 2ja daga holl. 3 stangir veiða Alviðruna og eru stangirnar alltaf seldar saman. Við lækkum einnig verðið á Alviðrusvæðið og nær það til alls tímabilsins. Þegar stakir dagar eru seldir, þá er hægt að hafa afnot af húsinu yfir daginn, en ekki er reiknað með að veiðimenn nýti það til gistingar – hægt er að óska eftir gistingu. Sjá hér.

Torfastaðir – Torfastaðasvæðið, sem nær frá Álftavatni og uppað Bíldsfellsvæðinu, var gjöfullt í sumar. Sérstaklega var bleikjuveiðin góð en einnig veiddust nokkrir laxar. Stakir dagar eru seldir inná Torfastaðasvæðið, 2 stangir í pakka. Nú erum við búin að setja apríl daga á vefinn, en fljótlega koma fleiri vor og sumardagar á vefinn. Sjá hér.