Vorið er komið, þó að kuldalægðirnar fái okkur stundum til að efast. Rok, rigning og hiti nálægt frostmarki er það sem veiðimenn hafa þurft að vinna með síðustu daga. Það breytir ekki þeirri staðreynd að silungurinn; bleikjan og urriðinn eru kominn á stjá í fæðisleit. Við tókum stöðuna, nú í vikunni, á nokkrum af þeim svæðum sem eru hér á vefnum.

Brúará – Skálholt. Við heyrðum í einum veiðimanni sem kíkti á Skálholtssvæðið í Brúará núna á þriðjudaginn. Hann hefur komið á svæðið í nokkur skipti og er því farinn að læra eilítið á það. Hann veiddi bæði á púpur og straumflugur þennan dag. Núna er skálholtssvæðið að þorna upp, þannig að auðveldara er að fara um svæðið á jepplingum og jeppum. Hann byrjaði við Litla-Hver og setti þar fljótlega í bleikju. Veðrið var mjög gott í upphafi dags og var fiskur víða í og rétt undir yfirborðinu.  Hann landaði þessar bleikju, ca. 45 cm langri. Eftir smá stund var hann búinn að setja í aðra sem hann missti. Hann setti svo í þá 3ju sem hann náði að landa. Eftir þetta ákvað hann að kíkja neðar á svæðið, alveg niður undir veiðimörkin við Hvítá. Þar setti hann í aðrar 3 bleikjur, 2 þeirra mjög vænar sem hann missti eftir snarpa baráttu. Þá þriðju náði hann að landa – Finn dagur og gott að sjá að Skálholtssvæðið sé að vakna. Þess má geta að hann sleppti bleikjunum sem hann náði á land.  Hérna eru leyfin á Skálholtssvæðið.

Hlíðarvatn í Selvogi – Við heyrðum í veiðimanni sem á daginn í dag, 19.maí. Hann mætti að vatninu í gærkvöldi og veiddi í smá stund. Honum leist ekki á blikuna á leiðinni úr bænum, enda rok og rigning. Suð-vestan átt sem getur tekið á niður við ströndina. Eftir um klst veiði var hann búinn að landa 3 fínum bleikjum og missa nokkrar – gaman að sjá að bleikjan er í tökustuði þrátt fyrir smá hraða á logninu í Selvoginum. Að auki tók einn flottur sjóbirtingur flugu veiðimannsins. Mostatanginn var veiðistaðurinn.

Hólaá – Útey. Fín veiði hefur verið efst í Hólaá, við Laugarvatn, síðustu daga. Lífríkið er að vakna við vatnið og bleikjan er komin á stjá. Hún hefur mikið verið í yfirborðinu í æti, enda flugan byrjuð að klekjast út. Laugarvatnið hefur einnig verið að gefa mjög vel – flottar bleikjur að veiðast þar. Hérna má finna leyfin á Úteyjarsvæðið.

Sogið, Torfastaðir. Mikið vatn er buið að vera í Soginu undanfarna viku, en þegar aðeins sjatnaði í ánni núna á miðvikudaginn, þá kíktu 2 veiðimenn á Torfastaðasvæðið. Þeir voru komnir um kl. 16:00 og þá var áin í um 135 rúmmetrum. Byrjað var að skanna nokkra staði nálægt vesturbakkanum, á Hólmasvæðinu, en engin bleikja fannst þar. Þegar komið var á þekktan stað á miðju svæðinu, þá byrjuðu lætin. Fiskur á í nánast hverju kasti – fínar bleikjur í bland við smærri. Sumar í flottu standi, aðrar þurfa að bæta svolítið á sig, og taka var eftir því. Eftir um 3 tíma, þá var búið að setja 23 bleikjur í háfinn. Sú stærsta ca. 55 cm löng. Gaman að sjá að bleikjan er komin inná svæðið. Núna er flott vatn í Soginu. Vatnsmagn komið niður undir 100 rúmmetra. Hérna eru leyfin í Sogið, Torfastað. Hérna má finna leyfi á Bíldsfellssvæðið í Soginu.