Nú fer hver laxveiðiáin á fætur annari að „opna“. Á morgun er m.a. fyrsti veiðidagurinn í Eystri Rangá. Eftir helgina „opna“ svo fjölmargar ár eins og Ytri Rangá, Gufuá, Hvítá, Sogið og Laugardalsá.  Nú í júní hefur verið komið fyrir teljara í laxastiganum í Laugardalsá. Teljarinn er einnig með myndavél og hefur hann staðfest að töluvert mikið af laxi er komin uppí ána, nær allt saman stórlax. Veiðin hefst einmitt í Laugardalsánni á miðvikudaginn, 20. júní. Vel er bókað í Laugardalsá í sumar, en þó eru nokkur síðsumarsholl laus, sjá hér.

Við eigum einnig nokkrar stangir lausar í Eystri Rangá, en eins og áður kom fram, þá er fyrsti veiðidagur þar á morgun.

Við eigum einnig lausar stangir í Gufuá í lok júní en laxinn er örugglega mættur á ósasvæðið og uppí neðstu veiðistaðina þar.

Við munum flytja fréttir af opnunum næstu daga.