Fossá í Þjórsárdal er mjög góð síðsumars laxveiðiá, en einnig góð silungsveiðiá. Laxasvæðið er fyrir neðan Hjálparfoss og niður að ármótum Fossár og Þjórsár. Á laxveiðitímanum veiðist oft töluvert af bleikju og sjóbirtingi og stöku staðbundinn urriði. Silungasvæðið nær frá Hjálparfossi að neðanverðu og uppað Háfossi að ofanverðu. Nú í maí og fram til 15. júní, erum við með kynningartilboð á báðum þessum svæðum en veitt er með 2 stöngum fyrir neðan foss og 2 stöngum fyrir ofan foss.
Vortilboð á Laxasvæðið – Svæðið fyrir neðan Hjálparfoss, laxasvæðið, hefur lítið sem ekkert verið stundað á vorin í gegnum tíðina en þó hafa þeir sem hafa kíkt oft veitt ágætlega og orðið var við fisk víða. Aðgengi að svæðinu er mjög gott. Nú í vor erum við með flott tilboð í vorveiðina á „laxasvæðið“ í fossá. Tilboð fyrir 2 stangir í maí og fram til 15. júní er á kr. 20.000 (10.00 stöngin). Um er að ræða 33% afslátt frá fullu verði. Hérna má sjá lausa daga.
Á vorin geta veiðimenn átt von á að veiða bleikju, urriða og sjóbirting á þessu svæði. Hérna er Frétt frá 2019 – frá vorveiðidegi á þessu svæði.