Nú vorum við að setja inná vefinn í sölu, staka dagar í ágúst í Blöndu I, II og III. Nokkrir dagar eru lausir og eru stangirnar seldar saman inná hvert svæði. Hinsvegar fylgir 1 auka stöng með þeim stöngum sem greitt er fyrir.

Blanda I – Nokkrir lausir dagar í ágúst og einnig 4 stakar vaktir. Hver dagur/vakt er seld sér. Á svæði I í Blöndu er veitt á 4 stangir en þessa daga í ágúst þá er greitt fyrir 3 stangir en veiða má á 4 stangir. Sjá hér.

Blanda II – Nokkrir dagar lausir í ágúst og einnig 4 stakar vaktir. Hver dagur/vakt er seld sér. Á svæði II í Blöndu er veitt á 4 stangir en þessa daga í ágúst er greitt fyrir 3 stangir, en veiða má á 4 stangir. Sjá hér.

Blanda III – Eins og á svæði I og II, þá eru lausir dagar og vaktir í ágúst. Veitt er á 3 stangir á svæði III en þessa ágúst daga þá er greitt fyrir 2 stangir en veiða má á 3 stangir. Sjá hér.

Fluga er eina leyfilega agnið í Blöndu og þessa daga í ágúst þá er sleppiskylda á öllum laxi.

Staða Blöndulóns er núna ansi góð, ef málið er skoðað útfrá þeim veiðimönnum sem hafa hug á að sækja Blöndu heim í sumar og haust. Lónið er núna rétt um 2,5 metrum undir meðalstöðu og nærri 4,5 metrum undir stöðunni á sama tíma (22. mars) í fyrra. Í fyrra fór lónið á yfirfall í kringum 20 ágúst. Líkur eru því á að hægt verði að veiða í Blöndu inní haustið, jafnvel út veiðitímann í September. Hérna má kíkja á stöðu lónsins.