Veiðifélag Mýrarkvíslar birti í dag auglýsingu þar sem það óskaði eftir tilboðum í lax- og silungsveiði í Mýrarkvísl í Suður-Þingeyjarsýslu. Útboðið nær til árana 2014, 2015 og 2016. Frestur til að skila inn tilboði rennur út þann 25. október og verða tilboðin þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska þess.

Við sögðum um daginn frá því að Mýrarkvísl væri á leiðinni í útboð, aftur, en haustið 2012 var áin boðin út en þau tilboð sem bárust voru ekki nógu hagstæð að mati veiðifélagins og því var ákveðið að friða ána að mestu nú í sumar. Veiðifélagið ákvað að gera það ekki aftur og því er áin komin í útboð.

Hér inni á veiða.is er hægt að nálgast upplýsingar um ána en hún er ein af hliðarám Laxá í Aðaldal. Sjá nánar hérna.

[email protected]