Nýtt útlit veiða.is og nýtt sölukerfi fyrir veiðileyfi

Nú er veiða.is komin í ný föt. Við höfum skipt út veiðigallanum sem keyptur var 2011 og erum komin í nýjar vöðlur og jakka. Samhliða þeirri breytingu höfum við einnig tekið í gagnið nýtt og aðgengilegt sölukerfi. Hægt verður eins og áður að ganga frá greiðslu með kreditkorti og millifærslu, en nú með sjálfvirkari hætti en áður. Á vefnum hafið

2016-11-25T19:51:14+00:0025. nóvember 2016|Fréttir|

Frábær veiði í Hlíðarvatni í sumar

Nú er veiðitímabilinu formlega lokið og veiðitölur að koma eða komnar í ljós úr flestum ám og vötnum. Eitt þeirra veiðisvæða sem er í sölu hér á veiða.is er Hlíðarvatn í Selvogi. Veiðin fór vel af stað í maí og var góð næstum allt tímabilið, fram í byrjun september. Búið er að fá staðfestar tölur

2016-11-21T09:00:48+00:002. nóvember 2016|Fréttir|

Stórlaxar á sveimi í Ytri Rangá

Ytri Rangá er að sjálfsögðu þekkt fyrir það að vera aflahæsta á landsins, nú undanfarið, ár eftir ár. Í gegnum tíðina hefur hún einnig verið þekkt fyrir góðar smálaxagöngur en síðustu árin hefur stórlaxi einnig fjölgað mikið í ánni og til marks um það þá hafa nokkrir laxar um og yfir 100 cm veiðst í

2016-11-21T09:01:59+00:0011. október 2016|Fréttir|

Laus leyfi nú í október

Nú eru aðeins örfáir dagar eftir af þessari veiðivertíð og í raun, flest veiðisvæði nú þegar lokuð fyrir veiði. Hér inni á veiða.is má þó finna laus veiðileyfi í Ytri Rangá og í sjóbirtingsveiði í Laxá og Brúará. Veíðin í Ytri Rangá hefur verið fín í október, frá ca. 10-75 löxum á dag. Flesta daga

2016-11-18T14:53:08+00:009. október 2016|Fréttir|

Laus leyfi á næstu dögum

Nú er aldeilis farið að hilla undir lok veiðitímabilsins. Sumar laxveiðiár hafa lokað nú þegar og einungis nokkrir dagar eftir hjá öðrum. Við viljum samt vekja athygli á nokkrum lausum dögum – Hvolsá og Staðarhólsá: Nú hefur rignt vel í dölunum og laxinn sem legið hefur í lóninu fyrir neðan árnar er að mestu genginn

2016-11-18T14:53:49+00:0020. september 2016|Fréttir|

Hátt í 600 laxar á land í Ytri Rangá síðustu 2 daga

Ytri Rangá er lang atkvæðamesta laxveiðiá landsins þetta veiðitímabilið, ef litið er til fjölda landaðra laxa. Nú 3ja september þá lauk „fly only“ tímabilinu í ánni og frá og með hádegi þann dag er leyfilegt að nota einnig spún og maðk. Síðan þessi breyting var gerð hefur hátt í 600 löxum verið landað og á

2016-11-18T14:54:25+00:005. september 2016|Fréttir|

Frábær veiði í Vatnamótunum

Sjóbirtingsveiðin fer mjög vel af stað og mikið af birtingu var kominn uppí árnar og t.d. á veiðisvæði Vatnamótanna, strax uppúr miðjum ágúst. Aflahroturnar hafa stundum verið svakalegar í Vatnamótunum undanfarna daga og dæmi um holl sem var með uppí 99 fiska. Flestir þeirra voru á bilinu 3-7 pund, en margir stærri fiskar, margir um

2016-11-18T14:56:33+00:004. september 2016|Fréttir|

Laus laxveiðileyfi á næstu dögum og vikum

Fram undan er lokaspretturinn á veiðitímabilinu. Hér að neðan má sjá nokkrar laxveiðikosti sem vert er að skoða: Ytri Rangá 31/8-2/9. Forfallastangir, 2 stangir. Listaverð 135þ 11-17. sep. Forfallastöng. Listaverð 90-70þ október – nokkrar lausar stangir. Verð kr. 25.000 stangardagurinn.

2016-11-18T14:57:09+00:0025. ágúst 2016|Fréttir|

Lausir dagar í Vatnsá

Vatnsá er 2ja stanga á sem rennur úr Heiðarvatni sem er fyrir ofan Vík í Mýrdal. Bæði veiðist vel af laxi og sjóbirtingi í ánni á haustin og getur birtingurinn orðið mjög vænn. Mikið af sjóbirtingi stærri en 65cm veiddist í ánni og vatninu síðasta haust og svo það sama er uppi á teningnum nú

2016-11-18T14:58:13+00:0016. ágúst 2016|Fréttir|

Lax og bleikjuveiði í Brúará – fín veiði

Veiðin í Brúará í sumar hefur verið góð. Mikið af bleikju hefur verið á Spóastaðasvæðinu, frá neðsta veiðistaðnum, Breiðabakka og vel upp fyrir fossinn Dynjanda. Laxinn hefur einnig látið sjá sig og hafa þó nokkrir komið á land, þó svo að fæstir þeirra endi sem færsla í veiðibókinni. Við höfum heyrt af 6 löxum og

2016-11-18T14:58:35+00:0010. ágúst 2016|Fréttir|
Go to Top