Veiðileyfi í Gufuá eru nú aðgengileg hérna á vefnum. Veiðileyfi í Gufuá hafa verið í sölu hér á veiða.is í nokkur ár og því þekkja viðskiptavinir okkar nokkuð til árinnar. Gufuá getur orðið fremur vatnslítil á þurrkasumrum en þá er það yfirleitt neðsta svæðið sem heldur veiðinni upp í ánni. Gufuá deilir ósasvæði með Hvítá í Borgarfirði og þegar fellur að, þá þrýstist vatn úr Hvítá uppí neðstu veiðistaði Gufuár og svæðið fer stundum allt á flot. Þegar svo fer að falla út aftur og laxinn fer að koma sér fyrir aftur, lenda veiðimenn oft í ævintýralegri veiði. Hérna má finna góða veiðistaðalýsingu frá Gylfa Jóni Gylfasyni, sem þekkir ána mjög vel.

Verð veiðileyfa í Gufuá næsta sumar er það sama og síðastu sumur, frá kr. 15.000 – 30.000. Lítið veiðihús eða veiðikofi fylgir með veiðileyfum í Gufuá og geta veiðimenn komið í hús að kveldi fyrir veiðidag og þeir þurfa að yfirgefa húsið og hreinsa það, áður en næstu veiðimenn koma í hús.

Heildarveiðin í Gufuá síðasta sumar var rétt um 100 laxar. Vatnsbúskapur árinnar var annar í sumar, en oft áður – mjög gott vatn var í ánni marga daga í byrjun veiðitímans. Það gaf laxinum greiða leið upp ána, uppá svæðið fyrir ofan þjóðveg sem hann er gjarnan að fara uppá í lok sumars þegar haust og síðsumars rigningarnar gera vart við sig. Minna var því að af laxi á ósasvæðinu, en oft áður.

Hérna má finna veiðileyfin í Gufuá.