Hér inni á vefnum má núna finna tvær mjög áhugaverðar „opnanir“ á veiðisvæðum, fyrstu dagana á næsta veiðitímabilið. Um er að ræða 2 stangir í Brunná í 3 daga og einnig 4 stangir í Myrarkvisl í 3 daga. Tveir aðskildir hópar gætu bókað þessi 2 svæði en einnig væri mjög góður kostur fyrir stóran +6 manna hóp að bóka bæði svæðin og rótera á milli.
Neðsti hluti Brunnár geymir oft mjög mikið af stórum fiski í upphafi vertíðar. Síðustu vor hafa margir stórir birtingar, urriðar og bleikjur veiðst á svæðinu. Veiðin er oft góð langt fram í maí mánuð – hérna má finna vorveiðidaga á svæðinu, 4. apríl og til loka maí.
Myrarkvisl er full of urriða – á vorin veiðist oft mikið af vænum urriða, 55 til +60cm löngum. Við Myrarkvisl er eitt af betri veiðihúsum landsins, byggt 2016-2017. Fjögur 2ja manna herbergi, hvert með sér baði – góð stofa, eldhús, heitur pottur osfrv. Hérna eru vorveiðidagar í Myrarkvisl.
Nú er um að gera fyrir veiðimenn að fara að undirbúa næsta veiðitímabil. Það eru einungis rétt um 140 dagar í 1. apríl. Það eru 3 veiðisvæði komin í sölu hér á vefnum: 1) Hvolsa og Staðarhólsá (full bókað 15/7-20/8), 2) Brunná og 3) Myrarkvisl, og þeim mun fjölga hratt á næstu vikum. Ef þið hafið áhuga á einhverjum tilteknum svæðum, sem ekki eru komin inná vefinn, þá má senda okkur póst og kanna stöðuna á þeim.








