Ytri Rangá er ein albesta laxveiðiá landsins með um 6.700 laxa meðalveiði, síðustu 12 ár. Veiði hefst í Ytri Rangá í kringum 20 júní og veiðitímabilinu lýkur 20. október. Fram til 6. júlí eru leyfi seld án hússkyldu en eftir það og fram til um 20. september verða veiðimenn að gista í veiðihúsinu. Fluga er eina leyfilega agnið frá opnun og fram í byrjun september, en eftir það má einnig veiða á maðk og spún.
M.a. í ljósi veirunnar sem herjar á heimsbyggðina, og þeirrar staðreyndar að færri erlendir veiðimenn koma til landsins í sumar en að öllu jöfnu, þá er framboð lausra leyfa, nú á þessum tímapunkti, meira en venjulega. Við eigum m.a. laus leyfi á stórstreymistíma í byrjun júlí og einnig í ágúst.
Hérna má finna lausa daga í Sumar í Ytri Rangá
Fyrir þá sem vilja koma í haustveiðina í Ytri Rangá, þá eru lausir dagar í október hérna.









