Vorveiðileyfi

Veiðitímabilið hefst formlega eftir örfáa daga. Hér á suðurlandi hefur heldur betur hlýnað, eftir annsi risjóttan febrúar og byrjun mars. Það er núna nær enginn snjór á lálendi og ís og krapi lítill sem enginn á ánum. Norðurlandið er eilítið skemmra á veg komið.

Hér á veiða.is bjóðum við uppá fjölda skemmtilegra vorveiðisvæða. Páskarnir í ár eru í kringum miðjan apríl og nóg af „Rauðum“ dögum til að kíkja í veiði.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir svæðin okkar. Í langflestum tilfellum eru seldir stakir dagar, frá morgni til kvölds.

Bíldsfell, Sog – Bleikja, Birtingur og Urriði. Stakir dagar, 4 stangir. Stundum 2 dagar í pakka, með húsi.

Brúará, Spóastaðir – Bleikja og urriði.

Brúará, Skálholt – Bleikja og urriði.

Hólaá. Útey – Bleikja og urriði.

Fossá – Silungasvæði

Galtalækur – Urriði

Hraun í Ölfusi – Sjóbirtingur og urriði

Hvítá fyrir landi Skálholts – Sjóbirtingur, urriði og bleikja

Minnivallalækur – Urriði. Stakir dagar seldir. Stakar stangir á virkum dögum. 2 í pakka um helgar.

Skorradalsvatn – Veiði hefst 20. apríl. Frábært veiðivatn með góðri stórfiskavon.

Torfastaðir, Sog – Nokkrir dagar stakir dagar lausir. Flott vorveiðisvæði.