Laxveiðivertíðin er hafin. Hver áin á fætur annarri „opnar“ þessa dagana. Flestar laxveiðiárnar sem eru í sölu hérna inni á vefnum „opna“ á milli 20. júní og 1. júlí en þó eru nokkrar nú þegar opnar.
Flóðatangasvæðið í Norðurá – Tvær stangir seldar saman í pakka. Stakir dagar. Fluguveiði – neðsta svæðið í Norðurá. Veiðin er farin af stað.
Brennan og Straumar í Borgarfirði – þessi 2 frábæru svæði eru nú þegar opin og fyrstu laxarnir komnir á land.
Gufuá í Borgarfirði – Veiðin hefst nú um helgina. Fluga og maðkur. Stakir dagar og stakar stangir.
Alviðran í Soginu – Veiðin hefst um helgina. Fluguveiði. Stakir dagar. Greitt fyrir 2 stangir en veiða má á 3. Fyrstu laxarnir hafa sést á Breiðunni og Öldunni.
Bíldsfell í S0ginu – Veiðin hefst hérna um helgina. Fluguveiði. Holl seld, 2-3 dagar í senn, 3 stangir saman.
Fossá í Þjórsárdal – Veiðin hefst 1. júlí – stakir dagar, 2 stangir í pakka. Frábær Síðsumarsá. Gott verð.
Fáskrúð í Dölum – Veiðin hefst í Fáskrúð 30. juní – Nokkur holl laus í þessari fallegu á.
Hallá á Skagaströnd – Veiðin hefst í Hallá um helgina. 2 stangir seldar saman í pakka, 2 daga í senn. Nokkur holl laus í sumar – þar á meðal 2 holl nuna í lok júní. Fínasta hús við ána.
Hrútafjarðará – Veiðin hefst í Hrútunni um helgina og fyrstu laxarnir hafa sést nu þegar. Við erum með eitt laust holl á vefnum hjá okkur og er það á betra verði. Kíkið á það.
Hvannadalsá – Veiðin hefst í Hvannadalsá 1. júlí. Áin er vel seld í sumar en nokkur laus holl í júlí og sept. 2 stangir seldar saman í pakka, 2-3 daga í senn. Frábært hús við ána.
Hvítá Við Skálholt – Veiðin hefst í næstu viku. 2 stangir seldar saman. Stakir dagar. Veiða má á flugu, spún og maðk.
Hvolsá og Staðarhólsá – Veiðin hefst 1. júlí. 4 stangir seldar saman í pakka, 2 daga í senn. Örfá holl laus. Fluga og maðkur. Mjög gott hús.
Laxá í Miklaholtshreppi – 2 stangir seldar saman í pakka. Stakir dagar. Betra verð á lausum dögum. Sjá hér.
Móra á Barðarströnd – Veiðin hefst 1. júlí. 2 stangir seldar saman í pakka. Örfá holl laus. Sjá hér.
Ölfusá við Selfoss – Veiðin hefst á svæðinu um helgina. Stakir dagar. Mjög spennandi svæði. Sjóbirtingsveiðin var góð þarna í vor og verður áhugavert að sjá hvort að laxveiðin verði eins góð í sumar – Neðst á svæðinu má finna hægar breiður og ofar eru hraðir strengir og rennur sem laxinn gengur upp um. Veiðibók er á bekk sem staðsettur er ofan við Kirkjugarðinn á Selfossi.
Stóra Laxá, Gljúfrin – Nýjasta svæðið í sölu hérna á vefnum. 2 stangir seldar stakar eða saman, í staka daga í senn. Spennandi svæði og verð veiðileyfa stillt í hóf. Sjá hér.