Hér á veiða.is má finna gríðarlega gott úrval laxveiðileyfa, bæði í laxveiðiár með full þjónustu en einnig í ár þar sem veiðimenn sjá um sig sjálfir að öllu leyti. Við erum með mikið úrval veiðileyfa í 2ja til 4ra stanga ár sem ætti að henta litlum sem stærri veiðihópum. Sumar þessara áa eru „fly only“ en við erum einnig með ár í sölu þar sem Leyfilegt er að veiða á maðk eða spún.

Óhætt er að fullyrða að hvergi er meira úrval á einum stað/vettvangi, hér á landi. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér að neðan gefum við dæmi um nokkrar af þeim „self catering“ laxveiðiám sem eru í sölu hér á vefnum.

Brennan í Borgarfirði – 3 stangir. Gott hús. Fluguveiði í júlí en fluga og spúnn í ágúst. 29-31. júlí er laus og einnig holl í ágúst.

Borgarsvæðið í Hólsá/Ytri Rangá – 4 stangir. Gott hús. Fluguveiði í ágúst og maðkur og spúnn í September. Laus holl í lok ágúst og í September

Fáskrúð – 2 til 3 stangir. Gott hús. Fluguveiði. Eitt laust holl í sumar, 9-11. ágúst.

Gljúfurá – 3 stangir. Fluguveiði. Lax og bleikja. Laus holl í lok júlí og í ágúst.

Gufuá – 2 stangir. Veiðihús. Fluga og maðkur. Stakir dagar seldir, má mæta í hús kvöldið áður.

Hölkná – 2 stangir. Gott hús. Fluguveiði. Laus holl í Ágúst og September.

Hörðudalsá – 2 stangir. Fínt hús. Fluga og maðkur. Laus holl í júlí og ágúst.

Hvolsá og Staðarhólsá – 4 stangir, gott hús. Fluga og maðkur. Laus holl í júlí, eitt holl í ágúst og nokkur í sept.

Laugardalsá – 2 til 3 stangir. Fluguveiði. Gott hús. Laus holl í ágúst og September.

Laxá í Laxárdal – 2 stangir. Gott hús. Fluguveiði. Lausir dagar í Ágúst.

Myrarkvisl – 4 stangir. Mjög gott hús. Fluguveiði. Laus holl í júlí, ágúst og September.

Norðurá, Fjallið – 3 stangir. Gott hús. Fluguveiði. Laus holl í júlí og ágúst.

Straumar í Borgarfirði – 2 stangir. Gott hús. Fluga í júlí en spún leyfðu í Ágúst. Laus holl í ágúst og byrjun sept.

Syðri Brú, Sogið – 1 stöng. Mjög gott hús. Fluguveiði. Stakir dagar og holl. Lausir dagar í júlí, ágúst og sept.

Vatnsá við Vík – 2 stangir. Fluguveiði. Gott hús. + veiði í Heiðarvatni. Laus holl í ágúst og September.

Þverá í Fljótshlíð – 4 stangir. Gott hús. Fluga og maðkur. Laus holl í lok sept og í október.

 

Ef þig vantar aðstoð við að bóka leyfin eða finna daga sem henta, sendu okkur tölvupóst eða hafðu samband hérna.